Forstjóri Coca-Cola í Skandinavíu aðstoðar við kynningu hjá Vífilfelli

Laurie McAllister, forstjóri Coca-Cola í Skandínavíu, kemur hingað til lands ásamt stórum hópi starfsmanna The Coca-Cola Company til aðstoða starfsmenn Vífilfells við kynningu á gosdrykknum Coke Zero. Hópurinn mun meðal annars taka þátt í að stilla gosdrykknum upp í hillum verslana í dag og næstu daga.

Árni Stefánsson, forstjóri Vífilfells, segir auglýsingaherferð Vífilfells fyrir Coke Zero líklega þá stærstu sem farið hafi verið í vegna kynningar á nýrri vöru á íslenskum matvörumarkaði. Coke Zero er sykurlaus kóladrykkur sérstaklega sniðinn að smekk karla, að því er kemur fram í tilkynningu frá Vífilfelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK