Launakostnaður hér á landi hærri en í Evrópusambandinu

Samanburður á launakostnaði í þeim atvinnugreinum sem rannsóknin nær til á Íslandi sýnir að heildarlaunakostnaður á Íslandi er í öllum tilvikum hærri en meðaltal heildarlaunakostnaðar innan Evrópusambandsins. Ef borinn er saman heildarlaunakostnaður á Íslandi og meðatal heildarlaunakostnaðar innan evrusvæðisins er munurinn hins vegar minni.

Þetta kemur fram í nýju hefti Hagtíðinda, sem Hagstofan gefur út og fjallar um alþjóðlegan samanburð á launakostnaði árið 2004. Í heftinu eru kynntar niðurstöður rannsóknar á launakostnaði fyrirtækja í Evrópu. Rannsóknin er framkvæmd á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, með þátttöku allra aðildarríkja sambandsins auk Íslands og Noregs.

Tilgangur rannsóknarinnar er að safna samræmdum upplýsingum um launakostnað í Evrópu. Á Íslandi er heildarlaunakostnaður á almennum vinnumarkaði mestur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 29 evrur á vinnustund en minnstur í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 22,5 evrur samkvæmt evrópskri rannsókn á launakostnaði. Hlutfall annars launakostnaðar en launagreiðslna af heildarlaunakostnaði er hæst í samgöngum og flutningum, 17% en lægst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 14,7%.

Hagstofan

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK