Vísitala neysluverðs hækkaði umfram spár

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,86% milli apríl og maí samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Er þetta nokkru meiri hækkun en greiningardeildir bankanna höfðu spáð en þær gerðu almennt ráð fyrir 0,5-0,6% hækkun vísitölunnar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,5%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 8,1% síðastliðna 12 mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,1% sem jafngildir 4,6% verðbólgu á ári (0,7% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1% (vísitöluáhrif 0,18%), aðallega vegna hækkunar á markaðsverði. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,3% (0,16%) og verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 3,1% (0,14%).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK