FL Group í fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum

FL Group hefur fjárfest í fjórum fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum fyrir 50 milljónir bandaríkjadala. Verkefnin verða unnin í samstarfi við Bayrock Group sem er alþjóðlegt fasteignafélag staðsett í Bandaríkjunum.

Þessi verkefni eru eftirtalin:

Trump Soho – Fimm stjörnu hótel í Soho hverfinu á Manhattan í New York í samstarfi við Donald Trump og Sapir Organization.

Trump Lauderdale – Fimm stjörnu hótel á strönd Fort Lauderdale í samstarfi við Donald Trump.

Whitestone New York – Þróun 13 ekru landsvæðis í Whitestone, Queens. Bayrock mun í framhaldinu byggja fjölda lúxus íbúða á svæðinu.

Camelback – Fimm stjörnu hótel í Phoenix.

Í tilkynningu frá FL Group segir, að áætlað sé að verkefnunum verði lokið innan þriggja ára. Fjárfestingin verði fjármögnuð með eigin fé og lánsfé.

Alfa Investment Consulting hafði milligöngu um viðskiptin og veitti Bayrock Group ráðgjöf.

FL Group hefur einnig gert samkomulag við Bayrock Group um jafna hlutdeild fyrirtækjanna í sameiginlegu félagi sem ætlað er að fjárfesta í alþjóðlegum verkefnum á sviði fasteignaþróunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK