Rætt um sameiningu Byrs og Sparisjóðs Norðlendinga

Sparisjóðurinn
Sparisjóðurinn Brynjar Gauti

Viðræður eru hafnar á milli Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga um mögulega sameiningu sjóðanna. Markmiðið er að styrkja stöðu sparisjóðanna í harðnandi samkeppni á fjármálamarkaði, samkvæmt fréttatilkynningu. Stjórnarformenn sparisjóðanna stýra viðræðunum samkvæmt umboði frá stjórnum þeirra.

Í mögulegu sameiningarferli er stefnt að því að miða skiptahlutföll við sex mánaða uppgjör sjóðanna sem birt verða í lok ágúst. Verði niðurstaða viðræðnanna jákvæð yrði sameining háð samþykki stofnfjáreigenda beggja sjóðanna, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Engin tímamörk hafa verið sett fyrir viðræðurnar en stefnt er að því að sameining komi í kjölfar sameiningar Byrs og Sparisjóðs Kópavogs, samkvæmt tilkynningu.

Byr varð til við sameiningu Sparisjóðs vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar árið 2006. Sameining Byrs og Sparisjóðs Kópavogs hefur verið samþykkt af stjórnum sjóðanna og býður samþykkis stofnfjáreigenda og Fjármálaeftirlitsins.

Sparisjóður Norðlendinga var stofnaður þann 30. júní 1997 með samruna Sparisjóðs Akureyrar og Arnarneshrepps og Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK