Úr gríðarmiklum hagnaði í taprekstur

Greiningardeild Kaupþings spáir 27 milljarða króna tapi á rekstri FL Group á þriðja ársfjórðungi.

Greiningardeild Kaupþings spáir 27 milljarða króna tapi á rekstri FL Group á þriðja ársfjórðungi. mbl.is

Meðbyrinn sem var á hlutabréfa- og fjármálamörkuðum á fyrri helmingi ársins hefur snúist upp í andbyr á þriðja fjórðungi ársins. Þetta kemur meðal annars skýrt fram í nýrri spá greiningardeildar Kaupþings banka um afkomu fjárfestinga- og rekstrarfélaganna Existu og FL Group á þriðja fjórðungi ársins. Greiningardeildin spáir því að verulegt tap verði af rekstri félaganna eða um 9,6 milljarðar hjá Existu og 27 milljarðar hjá FL Group.

Til marks um þau miklu umskipti sem hafa orðið skömmum tíma má nefna að á fyrri helmingi ársins var Exista rekið með um 71,2 milljarða króna hagnaði og FL Group með 23,1 milljarðs króna hagnaði.

Tap vegna lækkunar bréfa

Exista mun birta fjórðungsuppgjör sitt í næstu viku en greiningardeild Kaupþings banka spáir því að tap félagsins eftir skatta á þriðja fjórðungi ársins muni nema 112,3 milljónum evra eða um 9,6 milljörðum íslenskra króna og segir að tapið megi rekja til þess að verð skráðra hlutabréfa hafi lækkað mikið á fjórðungnum, þ.ám. bréf Bakkavör Group og norska tryggingafélagsins Storebrand en Exista er stór hluthafi í félögunum.

Sem kunnugt er notar Exista hlutdeildaraðferð á eign sína í Kaupþingi banka og Sampo, þ.e. reiknar sér ekki til tekna eða gjalda hækkun eða lækkun á gengi bréfa í þeim félögum heldur hluta af hagnaði þeirra í takt við eign sína í þeim en Exista á 20% í Sampo og 23% í Kaupþingi banka.

Töluverð óvissa í spánni

FL Group reiknar sér til tekna eða gjalda breytingar á markaðsvirði hlutabréfa í sinni eigu og færir sem óinnleystan gengishagnað eða gengistap. Sérfræðingar Kaupþings banka segja verðmæti eignasafns FL Group hafa minnkað mikið á þriðja fjórðungi ársins og þeir spá því að tap FL Group á þriðja fjórðungi ársins muni nema 27 milljörðum króna. Þeir taka þó fram að töluverð óvissa sé í spánni þar sem takmarkaðar upplýsingar liggi fyrir um hluta af eignasafni FL Group, fjármögnun þess og hvort FL Group muni uppfæra óskráðar eignir sínar.
Í hnotskurn
» Samanlagður hagnaður Existu og FL Group á fyrri helmingi ársins nam 94,3 milljörðum króna, þar af voru 71,2 milljarðar hjá Existu.
» Kaupþing spáir því að tap þeirra á þriðja fjórðungi verði 36,6 milljarðar, þar af 27 milljarðar hjá FL Group.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »
Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Innsýn í reksturinn

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir