Óbreyttir stýrivextir

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar

Bankastjórn Seðlabanka Íslands ákvað á fundi sínum að halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,75%. Er þetta í samræmi við spá Greiningardeildar Kaupþings og Greiningar Glitnis en Greiningardeild Landsbankans hafði spáð 0,25% vaxtahækkun.

Bankastjórn mun kynna rök fyrir ákvörðun sinni á sérstökum fundi sem sjónvarpað verður á vef bankans klukkan 11.

Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður birt fimmtudaginn 14. febrúar 2008.

Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,45% þann 1. nóvember sl. en í dag er um auka vaxtaákvörðunardag að ræða. Var þetta fyrsta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í ár en þeir höfðu verið óbreyttir frá því í lok síðasta árs, 13,3%. Alls voru vextirnir hækkaðir sjö sinnum á síðasta ári um samtals 3,3 prósentustig. Frá því í maí árið 2004 hafa vextirnir hins vegar verið hækkaðir nítján sinnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK