Glitnir spáir stýrivaxtalækkun í maí

Greining Glitnis telur að  Seðlabankinn muni stíga fyrsta vaxtalækkunarskrefið á árinu, þann 22. maí næstkomandi með 0,25% lækkun. Telur Glitnir að  í kjölfarið komi lækkunarferli þar sem bankinn fer með stýrivexti niður í 12% í árslok og 9% í lok næsta árs. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Greiningar Glitnis.

„Við spáum 8% lækkun gengis krónu yfir árið og að gengisvísitalan muni standa nærri 130 stigum undir lok árs. Fyrri hluti þessa árs mun markast af hægfara veikingu krónu en í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabanka mun gengi krónunnar gefa hraðar eftir. Á næsta ári mun krónan að líkindum sækja í sig veðrið á ný þegar aukið líf færist jafnt í innlent hagkerfi og alþjóðlega fjármálamarkaði," samkvæmt skýrslu Greiningar Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK