Tímar hagræðingar, ráðdeildar og sparnaðar framundan

Frá aðalfundi Glitnis í dag.
Frá aðalfundi Glitnis í dag. Árvakur/Golli

„Tímar hagræðingar, ráðdeildar og sparnaðar eru framundan," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, nýkjörinn stjórnarmaður í Glitni á aðalfundi bankans í dag. Reiknað er með að Þorsteinn Már verði kjörinn stjórnarformaður bankans.

Sagði Þorsteinn Már, að bankinn yrði að sýna aðhald að tillaga, sem hann lagði fram á aðalfundinum um að þóknun stjórnar- og varastjórnarmanna yrði lækkuð verulega, mætti túlka sem ábendingu um að hann teldi að skoða ætti alla möguleika í þessum málum og að stjórn Glitnis geti ekki verið þar undanskilin frekar en aðrir. 

Þorsteinn sagði einnig, að breikka þyrfti hluthafahóp bankans og hann horfði einkum til lífeyrissjóðanna í því sambandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK