Einungis 51 kaupsamningi þinglýst

mbl.is

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 18. apríl til og með 24. apríl 2008 var 51. Þar af voru 37 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhús. Heildarveltan var 2.232 milljónir króna og meðalupphæð á samning 43,8 milljónir króna. Að meðaltali var 85 kaupsamningum þinglýst á viku síðastliðnar tólf vikur.

3 kaupsamningum þinglýst á Akureyri og 3 á Árborgarsvæðinu

3 kaupsamningum var þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhús. Heildarveltan var 37 milljónir króna og meðalupphæð á samning 12,2 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins.

 3 kaupsamningum var þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhús. Heildarveltan var 45 milljón króna og meðalupphæð á samning 15 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK