Broddflugan Evelyn Y. Davis

Evelyn Davis talar á hluthafafundi Lockheed Martin Corporation.
Evelyn Davis talar á hluthafafundi Lockheed Martin Corporation.

Öldruð kona í Bandaríkjunum hefur náð miklum árangri í að berjast fyrir hagsmunum minni hluthafa í þarlendum fyrirtækjum. Sú heitir Evelyn Y. Davis og hefur oft verið nefnd drottning „fyrirtækjafrumskógarins.“

Evelyn þessi er orðin 78 ára gömul og hefur allt frá árinu 1960 verið áberandi á hluthafafundum bandarískra fyrirtækja. Ætla má að sjaldan hafi hún haft jafnmikið að gera og nú. Mikið hefur verið deilt á stjórnendur og stjórnir fyrirtækja vestanhafs fyrir að skammta sér vænar launagreiðslur og kaupauka og því er líklegt að gósentíð sé hjá þeim sem veita slíkum aðilum virkt aðhald.

Frú Davis var lengi vel álitin sérvitur í meira lagi og jafnvel stórundarleg en henni hefur engu að síður tekist að vinna sér inn mikla virðingu í Bandaríkjunum. Henni hefur enda margoft tekist að knésetja stjórnendur stórfyrirtækja í mörgum þeim mála sem hún hefur barist fyrir.

Evelyn hefur gjarnan mætt skrautlega klædd á hluthafafundi, m.a. í þröngum stuttbuxum, sundfötum og einkennisbúningi skurðlæknis og segir hún ástæðuna fyrir þessum uppátækjum vera þá að hún þurfi að ná athygli fundarmanna. Þegar hún talar er germönskuskotinn hreimur hennar mjög áberandi og röddin frekar skræk, nokkuð sem blaðamaður St. Petersburg Times segir vera mjög öflugt vopn þegar hún hefur hljóðnema í hendi. 

Hvort sem hún er undarleg eður ei eða bara það sem kallast kynlegur kvistur, er ljóst að henni hefur tekist að ná athyglinni og að margir hafa notið góðs af starfi hennar. Þrátt fyrir það er hún ekki í forsvari fyrir nein samtök en „enginn þekkir fyrirtæki Bandaríkjanna jafn vel og Evelyn Y. Davis,“ eins og hún segir sjálf.

Nánar er fjallað um Evelyn í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.

Viðtal sjónvarpsstöðvarinnar NBC við Davis

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK