Hættir við stofnun 70 milljarða króna fasteignaþróunarsjóðs

Kaupþing banki
Kaupþing banki

Kaupþing banki hefur hætt við áætlanir um stofnun um 70 milljarða íslenskra króna fasteignaþróunarsjóðs vegna skorts á áhuga af hálfu fjárfesta að koma að sjóðnum. Kaupþing hugðist fá með sér fjárfesta í Kaupthing Oppurtunistic Real Estate Fund og leggja í sjóðinn um 20 milljarða af hlutafé sem bankinn á í fimm fasteignaverkefnum, þar á meðal um 60% hlut í lúxusíbúðaverkefni í Beverly Hills sem CPC Group, sem er í eigu Christian Candy, er með í þróun. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag en þar er vísað í frétt á vef Property Week.

Kaupþing staðfesti við Viðskiptablaðið að hætt hefði verið við stofnun sjóðsins og talsmenn bankans segja að ástæðan sé breyttar markaðsaðstæður. Í frétt Property Week segir að sjóðurinn hafi átt að vera hluti af fasteignaráðgjöf Kaupþings sem fjárfesti í verkefnum með frumkvöðlum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK