Telja enga ástæðu til að auka olíuframleiðslu

Forseti OPEC, Chakib Khelil, sagði í dag að olíuframleiðendur sjái enga ástæðu til þess að auka olíuframleiðslu. Segir Khelil að ástæðu verðhækkana á hráolíu megi rekja til utanaðkomandi aðstæðna svo sem þrýstings Bandaríkjanna á Íran og veikingu Bandaríkjadals.

Khelil sagði þetta eftir fund sem hann átti hjá Evrópusambandinu í dag. Sagði hann að OPEC ríkin telji að framleiðslan sé nóg til þess að uppfylla þarfir markaðarins og birgðastaðan sé góð. „Ég held að markaðurinn sé að bíða eftir því hvernig Bandaríkjadal á eftir að reiða af í júlí. Eins hvernig samspil stjórnmála og landafræði verður vegna hótana í garð Írana," sagði Khelil.

Verð á hráolíu hefur hækkað í dag og er nú rúmir 138 dalir á tunnuna. Verðið hefur hæst farið í tæplega 140 dali.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK