Krónan hefur styrkst um 0,64% það sem af er degi og er velta á millibankamarkaði komin í 6,3 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Gengisvísitalan var 155,40 stig við opnun markaða klukkan 9:15 í morgun en er nú 154,40 stig. Gengi Bandaríkjadals er 76,90 krónur, pundið er 151,30 krónur og evran 120,37 krónur.