Mikið tap á rekstri HB Granda

HB Grandi á Akranesi.
HB Grandi á Akranesi.

Tap á rekstri HB Granda var 3198 milljónir króna á fyrri hluta ársins en á sama tímabili árið áður varð 2933 milljóna króna hagnaður.

Rekstrartekjur fyrri árshelmings voru 6917 milljónir en voru 7696 milljónir árið áður. Segir félagið að lægri tekjur skýrist einkum af mun minni afla. Þannig minnkaði veiði þorsks um 42% og loðnu um 47% vegna minnkaðra aflaheimilda, sem og ýsu um 31% vegna minni þorskveiði.

Félagið segir, að það sem af er seinni árshelmingi 2008 hafi uppsjávarskip HB Granda veitt rúmlega 33 þúsund tonn af norsk-íslenskri síld og makríl og sé aflaverðmætið rétt innan við einn milljarð króna, sem er heldur meira en heildaraflaverðmæti skipanna á fyrri árshelmingi. Aflinn hefur allur farið í bræðslu, mest í verksmiðju félagsins á Vopnafirði. Togarar félagsins hafa einnig aflað vel, einkum af ufsa.

HB Grandi

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK