Dregur úr vöruskiptahalla

Í ágúst  voru fluttar út vörur fyrir 31,3 milljarða króna og inn fyrir 34,5 milljarða króna. Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3,2 milljarða króna. Í ágúst 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 17,4 milljarða króna á sama gengi, að því er kemur fram á vef Hagstofunnar.

Fyrstu átta mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 272,3 milljarða króna en inn fyrir 317,3 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 45  milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 81,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 36,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 35 milljörðum eða 14,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 46,5% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 36,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,9% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka, og í útflutningi skipa og flugvéla.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,9 milljörðum eða 0,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK