Viðskipti
| mbl
| 2.10.2008
| 11:20
Krónan enn í frjálsu falli
Svo virðist sem ekkert lát ætli að verða á frjálsu falli krónunnar. Gengisvísitalan stendur nú í 205,55 stigum en var 202 stig við upphaf viðskipta í morgun. Þetta þýðir að gengi krónunnar hefur lækkað um 1,75% í dag. Bandaríkjadalur er 111,90 krónur, pundið 197,40 krónur og evran 155,38 krónur.
Gengi Bandaríkjadals hefur hækkað á árinu um tæp 80% gagnvart krónunni. Pundið um tæp 60%, danska krónun um 70%, japanska jenið um rúm 90% og evran um tæp 70%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















