MP fær viðskiptabankaleyfi

Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP
Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP

Fjármálaeftirlitið hefur veitt MP Fjárfestingarbanka hf. viðskiptabankaleyfi. Ekki er gert ráð fyrir verulegum breytingum á starfsemi bankans á grundvelli hins nýja leyfis. Leyfið gerir bankanum kleift að taka á móti innlánum á þeim mörkuðum sem bankinn starfar á og mun bankinn þegar hefja viðtöku innlána á Íslandi.

Innlán hjá MP Fjárfestingarbanka njóta sömu tryggingar og innstæður hjá öðrum fjármálafyrirtækjum, líkt og fram kemur í nýjum lögum um fjármálafyrirtæki.

Leyfið gildir frá 10. október 2008 og er veitt í fyrstu til 31. desember 2008. MP Fjárfestingarbanki hf. var stofnaður árið 1999 og fékk starfsleyfi sem fjárfestingarbanki árið 2004. Stjórn og forstjóri eru mjög þakklát fyrir það traust sem bankanum er sýnt við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja í íslensku efnahagslífi, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK