Obama ræður sérfræðingateymi til að glíma við kreppuna

Barack Obama hefur ráðið sérstakt teymi hagfræðinga, viðskiptaforkólfa og stjórnmálamanna til þess að hjálpa sér að glíma við kreppuna.

Umfang þeirrar áskorunar sem Obama þarf að takast á við mun skýrast seinna í dag þegar ný tölfræði um atvinnuleysi í Bandaríkjunum verður birt.

Meðlimir teymisins, sem eru sautján talsins, voru ráðnir í gær og munu funda með Obama í Chicago í dag til þess að fara yfir hvernig sé best að glíma við þá langvinnu alþjóðlegu kreppu sem er framundan, að því er segir á vef breska dagblaðsins The Guardian.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK