Kröfuhafar hafa síðasta orðið um málsókn

Höfuðstöðvar Singer & Friedlander.
Höfuðstöðvar Singer & Friedlander.

Enn er unnið að frumathugun á því hvort höfðað verður skaðabótamál gegn breska ríkinu af hálfu Kaupþings. Segir í tilkynningu frá skilanefnd bankans að málaferli af þessum toga séu mjög kostnaðarsöm og í þeim fólgin mikil óvissa um niðurstöðu. „Að óbreyttu eru það kröfuhafar bankans sem þurfa að bera þann kostnað og taka þá áhættu sem af slíkum málaferlum leiðir. Þeir hljóta því að eiga síðasta orðið um það hvort af málssókn verður."

Í tilkynningu frá skilanefndinni segir að í kjölfar inngripa breskra yfirvalda með skipan skiptastjóra í Kaupthing Singer & Friedlander, dótturfélag Kaupþings banka hf., þann 9. október síðastliðinn óskaði skilanefnd Kaupþings banka eftir því við bresku lögmannsstofuna Grundberg, Mocatta, Rakison LLP að gerð yrði frumathugun á því hverjir væru möguleikar bankans á að krefjast skaðabóta á hendur breska ríkinu.

Unnið er að því að útvega þau gögn sem óskað hefur verið eftir til að ljúka þessari athugun, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK