Ekki viss um samskipti

Geir Haarde forsætisráðherra Íslands.
Geir Haarde forsætisráðherra Íslands. mbl.is/Ómar óskarsson

Geir H. Haarde forsætisráðherra segist ekki viss um hvaða samskipti hafi átt sér stað milli íslenska Fjármálaeftirlitsins (FME) og þess breska (FSA) eftir að íslenski seðlabankinn veitti Kaupþing þrautavarnarlán í aðdraganda falls bankans. Í viðtali við BBC er Geir spurður um hvort að bresk stjórnvöld hafi vitað af láninu þegar þau gripu til aðgerða gegn Singer & Friedlander (S&F), dótturfélagi Kaupþings, sem leiddi að endingu til þess að S&F féll. Hrun Kaupþings er rakið til þess þrots.

Í viðtalinu ræðir Geir einnig um mögulega lögsókn Íslendinga á hendur Bretum vegna falls Kaupþings. Þar segir hann að íslensk stjórnvöld séu að láta athuga hvort aðgerðir breskra fjármálayfirvalda hafi leitt til þess að S&F fór í þrot. Samkvæmt frétt BBC um málið gæti breska ríkið þurft að greiða nokkra milljarða punda í skaðabætur til íslenskra stjórnvalda og kröfuhafa gamla Kaupþings ef þau myndu tapa málsókn vegna aðgerða sinna í garð S&F.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK