Versta árið frá hruni Sovétríkjanna

Frá kúbanskri bananaekru
Frá kúbanskri bananaekru Reuters

Ráðherra efnahagsmála á Kúbu, Jose Luis Rodriguez, segir að árið 2008 sé það versta í fjárhagslegum skilningi á eyjunni frá falli Sovétríkjanna.  Hagvöxtur mælist 4,3% á Kúbu í ár sem er langt undir spám stjórnvalda sem gerðu ráð fyrir 8% hagvexti í ár. Hefur forseti landsins, Raul Castro, ákveðið að bregðast við versnandi efnahagsástandi með því að draga úr ferðalögum opinberra starfsmanna og aukagreiðslum til þeirra.

Náttúran hefur farið óblíðum höndum um Kúbu í ár en þrír fellibylir riðu yfir eyjuna. Et talið að tjón af völdum þeirra, Gustav, Ike og Paloma, nemi um 10 milljörðum Bandaríkjadala. 

Eins hefur kostnaður við innflutning á matvælum aukist um ríflega 8 milljarða dala á milli ára, að því er fram kemur í frétt BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK