Heimsmarkaðsverð á olíu daðrar við 40 dali

Verð á hráolíu hefur sveiflast mikið á markaði í New …
Verð á hráolíu hefur sveiflast mikið á markaði í New York í vikunni Reuters

Sveiflukenndri viku er lokið á olíumarkaði og var lokaverð hráolíu til afhendingar í febrúar 40,83 dalir tunnan á NYMEX markaðnum í New York í kvöld.  Um tíma í kvöld fór tunnan undir 40 dali. Á mánudag fór tunnan í 48 dali en hækkunin þá skýrist af átökunum á Gaza. Lækkunina síðustu þrjá daga má hins vegar rekja til efnahagsástandsins í Bandaríkjunum.

Í  fyrradag voru birtar nýjar tölur um hráolíubirgðir í Bandaríkjunum og reyndust þær vera miklu meiri heldur en talið var. Í dag voru birtar tölur um atvinnuleysi þar í landi og mælist það nú 7,2%. Því er ljóst að efnahagsástandið hefur sjaldan verið jafn slæmt í Bandaríkjunum síðustu áratugi.  

Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 25 sent og lokaði í 44,42 dölum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK