FME: Þrjú mál send til lögreglu

Fjármálaeftirlitið
Fjármálaeftirlitið mbl.is/Eyþór

Fjármálaeftirlitið hefur lagt  stjórnvaldssektir á tæplega 30  aðila frá miðju ári  2007 til ársloka  2008. Um er að ræða álagningu stjórnvaldssekta vegna brota á lögum um vátryggingastarfsemi, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti. Hæsta sekt sem lögð var á lögaðila er 20 milljónir króna en ein milljón króna á einstakling. Þremur málum var vísað til lögreglu.

Á vef FME kemur fram að nokkur málanna sneru að brotum gegn reglum um virka eignarhluti samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Með virkum eignarhlut er átt við beina eða óbeina hlutdeild í fyrirtæki sem nemur 10% eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis.  Meðal annars var um að ræða brot sem laut að því að ekki var sótt fyrirfram um að fara með virkan eignarhlut, eins og lög gera ráð fyrir.

Eitt mál sneri að broti á lögum um fjármálafyrirtæki vegna viðskipta starfsmanna við fjármálafyrirtæki. Um var að ræða brot á lagagrein sem kveður á um að samningur fjármálafyrirtækis um lán, ábyrgðir, kauprétt eða sambærileg viðskipti við framkvæmdastjóra sé  háð samþykki stjórnar fyrirtækisins.

Á tímabilinu var eitt fjármálafyrirtæki sektað vegna brots á tilkynningarskyldu, 38. gr. laga um fjármálafyrirtæki, vegna misbrests á því að tilkynnt væri um fyrirhugaða starfsemi erlendis, áður en hún hófst.

Á tímabilinu var í tveimur tilvikum sektað vegna brots á reglum um virka eignarhluti í lögum um vátryggingastarfsemi. 

Nokkur hluti þeirra mála sem beitt var sektum í varða brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Af þessum  málum voru 17 málanna tilkynningarskyldubrot (tilkynninga- og birtingarskyldubrot), þ.e.a.s. brot vegna of seint fram kominna tilkynninga vegna viðskipta innherja eða aðila þeim tengdum, með vísan til laga um verðbréfaviðskipti. 

Fyllri upplýsingar um stjórnvaldssektir verður að finna í ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins. Útgáfu ársskýrslu sem og ársfundi hefur verið frestað fram á vor vegna þeirra aðstæðna sem uppi hafa verið á fjármálamarkaði, að því er segir á vef FME.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK