Toyota eykur starfshlutfall á ný

Toyota á Íslandi hefur ákveðið að auka starfshlutfall starfsmanna á verkstæðum fyrirtækisins í Kópavogi í 100% á ný í febrúar og segir ástæðuna góða verkefnastöðu.

Starfshlutfall allra starfsmanna Toyota í Kópavogi var um áramótin lækkað í 90%, en vegna meiri umsvifa á verkstæðum en búist var við hefur starfshlutfall þar verið fært til fyrra horfs. 

Toyota segir, að 170 nýir fólksbílar hafi selst í janúar og þar af hafi 55 eða 32,4% verið frá Toyota. Alls seldust 204 fólks- og sendibílar í janúar. Þar af voru 78 frá Toyota og Lexus eða 38,2%. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK