Hagnaður MP banka 860 milljónir króna

Hagnaður MP banka nam 860 milljónumkróna eftir skatta á síðasta ári samanborið við 1.780 milljónir króna árið 2007. Arðsemi eigin fjár var 14,7%. Skýringin á minni hagnaði bankans eru afskriftir í kjölfar falls stóru íslensku bankanna og gjaldþrots Lehman Brothers. Samtals lagði bankinn til hliðar 2.248 milljónir króna vegna afskrifta og telur sig þar með hafa mætt allri afskriftaþörf sem leiddi af bankahruninu, að því er segir í tilkynningu. „Hagnaðurinn jafngildir 14,7% ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli. Eigið fé nemur 6.624 milljónum króna og er eiginfjárhlutfall bankans (CAD) 22,3%.

Meira en helmingur af eignum bankans var í lausu fé, innstæðum hjá Seðlabanka Íslands og í ríkistryggðum skuldabréfum."

MP banki fékk viðskiptabankaleyfi í lok starfsársins og í árslok námu innlán þriðjungi af fjármögnun bankans en það hlutfall er í dag rúmlega 40%.

„Rekstur MP Banka gekk vel á árinu, sérstaklega þegar tekið er mið af mjög erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum um allan heim. Vaxtamunur bankans jókst verulega frá fyrra ári sem skýrist að miklu leyti af stöðutöku bankans á skuldabréfamarkaði sem og stór auknum umsvifum í skuldabréfamiðlun.

Þóknunartekjur dragast nokkuð saman frá árinu 2007 sem skýrist af minnkandi umsvifum á innlendum og erlendum hlutabréfamarkaði, þó aukningin í þóknunum af skuldabréfamiðlun vegi þar talsvert á móti.

Fall íslenska bankakerfisins sem og gjaldþrot Lehman Brothers hafði veruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins og þurfti bankinn að færa í afskriftarreikning verulegar fjárhæðir vegna þessara tveggja atburða. Jafnframt missti bankinn mikið af áhættuvörnum gegn lækkandi eignaverði við fall Lehman Brothers.

Eignastýringu bankans vegnaði vel á árinu þar sem góður árangur í stýringu eignasafna viðskiptavina hefur leitt til mikillar aukningar eftirspurnar hjá MP Banka á því sviði. Gildir það jafnt fyrir einstaklinga og stofnanafjárfesta.

Gengishagnaður bankans var góður á árinu sem skýrist aðallega af gengishagnaði af stöðutöku í ríkistryggðum skuldabréfum. Í uppgjörinu er veruleg niðurfærsla á fyrirtækjaskuldabréfaeign bankans.

CAD eiginfjárhlutfall bankans í árslok 2008 var 22,3%," að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK