„Hústökumenn í jakkafötum“

Frá skrifstofu Teymis á Suðurlandsbraut, þar sem húsleit var gerð …
Frá skrifstofu Teymis á Suðurlandsbraut, þar sem húsleit var gerð á dögunum vegna deilnanna um Tal. mbl.is/Árni Sæberg

Forsvarsmenn Teymis segja í yfirlýsingu að ráðist hafi verið í lögleysu inn í Tal og  forstjóri félagsins borinn þaðan út. Yfirlýsingin ber fyrirsögnina Hústökumenn í jakkafötum og er svohljóðandi:

„Samkvæmt fréttum hafa Hermann Jónasson og Jóhann Óli Guðmundsson ráðist í lögleysu inn í fjarskiptafyrirtækið Tal og borið þaðan út forstjóra félagsins. Aðgerðirnar hafa þeir reynt að réttlæta með vísan í úrskurð Fjármálaráðuneytis. Sá úrskurður lýtur hins vegar ekki að lögmæti brottvikningar Hermanns úr starfi forstjóra í desember sl. eða ráðningar nýs forstjóra í kjölfarið heldur formreglum hlutafélagalaga.  Ráðuneytið er sammála Teymi um, að deilur sem þessar beri að útkljá fyrir dómstólum.
 
Teymi  hefur kappkostað að halda hinu öfluga starfsfólki Tals fyrir utan hluthafadeilurnar og harmar, að Hermann Jónasson og Jóhann Óli Guðmundsson skuli svífast einskis til að tryggja Hermanni starf hjá félaginu í óþökk meirihlutaeiganda. Með því hafa þeir skapað óþolandi vinnuaðstæður fyrir heiðarlegt og duglegt starfsfólk Tals og brotið gróflega á Ragnhildi Ágústsdóttur, sem þeir hafa ítrekað reynt að hrekja úr starfi forstjóra Tals á undanförnum vikum, jafnvel þótt hún sem barnshafandi njóti lagaverndar gegn uppsögn.
 
Teymi lítur svo á, að allar ákvarðanir sem Hermann Jónasson tekur sem sjálfskipaður forstjóri Tals séu ólögmætar þar dómstóll hefur úrskurðað í málinu.
 
Teymi er eigandi 51% hlutafjár í Tali og á kauprétt á hlutum Jóhanns Óla og Hermanns í september nk.“
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK