Skilanefnd Glitnis stendur við orð sín

BOB STRONG

Í tilefni af fréttatilkynningu Baugs Group hf. til fjölmiðla fyrr í dag vill skilanefnd Glitnis banka hf. taka fram að hún stendur í einu og öllu við málatilbúnað sinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og hafnar alfarið athugasemdum sem fram komu í fréttatilkynningu Baugs Group hf. í dag.

„Þær skýringar sem Baugur Group hf. setur nú fram eru að mati skilanefndar hvorki í samræmi við raunveruleikann né fyrri skýringar Baugs Group hf. á sömu atriðum.  Glitnir banki hf. leitaði sérstaklega eftir skýringum á misræmi á verðmati eigna á fundi með kröfuhöfum hinn 27. febrúar síðast liðinn. Þá voru skýringar ekki tiltækar. Síðar fram komnar skýringar Baugs Group hf. á misræminu eru ekki í samræmi við þær sem framkoma í fréttatilkynningu Baugs Group hf. fyrr í dag. 

Skilanefnd Glitnis undrast áróðurskennda yfirlýsingu Baugs Group hf. sem send hefur verið fjölmiðlum og vísar henni alfarið á bug," að því er segir í athugasemd frá skilanefnd Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK