Kaupsamningum fækkar um 58%

Rax

Alls var 149 kaupsamningi um fasteignir þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars. Heildarvelta nam 5,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 36,7 milljónir króna. Þegar mars 2009 er borinn saman við mars 2008 fækkar kaupsamningum um 58% og velta minnkar um 54,4%.

Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 2,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 1,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,8 milljörðum króna.

Veltan eykst um 26,5% frá því í febrúar

Þegar mars 2009 er borinn saman við febrúar 2009 fjölgar kaupsamningum um 2,8% og velta eykst um 26,5%. Í febrúar 2009 var þinglýst 145 kaupsamningum, velta nam 4,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,8 milljónir króna.

Í mars 2008 var þinglýst 355 kaupsamningum, velta nam 12 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 33,7 milljónir króna.

20 fasteignir seldar á Akureyri

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Akureyri í mars 2009 var 20. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 421 milljón króna og meðalupphæð á samning 21 milljón króna.

Á sama tíma var 15 samningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 10 samningar um eignir í sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 291 milljón króna og meðalupphæð á samning 19,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 1 samningi þinglýst á Akranesi. Það var samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 37 milljónir króna.

Á sama tíma var 29 samningum þinglýst í Reykjanesbæ. Þar af voru 22 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um eignir í sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 853 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,4 milljónir króna.

Haraldur Guðjónsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK