Viðskipti
| mbl
| 6.4.2009
| 11:40
Vilja að Austur-Evrópuríki taki upp evru
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill, að aðildarríki Evrópusambandsins í austurhluta Evrópu taki upp evruna án þess að ganga formlega í Efnahags- og myntbandalag Evrópu, EMU. Þetta kemur fram í leynilegri skýrslu, sem blaðið Financial Times vitnar til í dag.
Í skýrslunni er lagt til, að ríki á svæðinu, sem hafa lent í efnahagserfiðleikum, ættu að fá aukaaðild að EMU án þess að fá sæti í stjórn Seðlabanka Evrópu. Með þessu móti muni traust á efnahagskerfi ríkjanna aukist.
Financial Times segir, að andstaða sé við áformin innan aðildarríkja EMU og seðlabankans en þar á bæ vilja menn ekki slá af evrureglum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















