Olíubirgðir minnkuðu umtalsvert

Miðlarar á NYMEX markaðnum í New York þar sem viðskipti …
Miðlarar á NYMEX markaðnum í New York þar sem viðskipti með hráolíu fara fram. AP

Olíuverð hefur lítið breyst í dag þrátt fyrir tölur, sem birtar voru í dag og sýndu að hráolíubirgðir í Bandaríkjunum minnkuðu um 4,7 milljónir tunna í síðustu viku. Þessar tölur komu á óvart en sérfræðingar segja að dregið hafi mjög úr eftirspurn þar í landi.

Verð á hráolíutunnu fór í 60,08 dali á markaði í Bandaríkjunum í gær og hafði þá ekki verið hærra í hálft ár. Það lækkaði heldur í dag og var 58,91 dalur tunnan.

Í Lundúnum seldist tunnan af Brent Norðursjávarolíu á 57,94 dali. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK