Góð þátttaka í hlutafjárútboði Marel

Theo Hoen er forstjóri Marel Food Systems.
Theo Hoen er forstjóri Marel Food Systems. mbl.is/RAX

Hlutafjárútboði Marel Food Systems hf. til fagfjárfesta lauk í dag. Góð þátttaka var í útboðinu og bárust tilboð um kaup á alls 26.567.963 hlutum. Stjórn félagsins ákvað að taka öllum tilboðum, sem voru að stærstum hluta frá lífeyrissjóðum, á verðinu 54 krónur á hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Heildarsöluandvirði útboðsins var 1.434.670.002 krónur. sem svarar til 8,3 milljóna evra.

Stjórn Marel hefur í kjölfarið samþykkt að auka hlutafé félagsins um 26.567.963 hluti. Hlutafjárhækkunin nemur 4,6% og er heildarhlutafé Marel 606.868.275 hlutir eftir útboðið.

Nýi Kaupþing banki hf. (Kaupþing) hafði umsjón með útboðinu fyrir hönd Marel Food Systems en tilgangur útboðsins var að styrkja frekar lausafjárstöðu félagsins, ásamt því að auka sveigjanleika og minnka rekstraráhættu.

Gjalddagi hinna nýju hluta er fimmtudaginn 11. júní næstkomandi. Marel mun óska eftir því að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta hjá Nasdaq OMX Iceland eigi síðar en mánudaginn 15. júní næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK