Helgi hættir hjá Kaupþingi

Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur, hefur sagt starfi sínu lausu. stækka

Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur, hefur sagt starfi sínu lausu. mbl.is/Golli

Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur Nýja Kaupþings, hefur sagt starfi sínu lausu hjá bankanum frá og með deginum í dag „í því skyni að skapa frið um bankann og enduruppbyggingu hans,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.   

Töluvert hefur verið fjallað um aðkomu Helga Sigurðssonar að kaupréttarsamningum starfsmanna gamla Kaupþings. Fram kom m.a. í DV í dag, að Helgi hefði í júní 2006 skuldað bankanum 449 milljónir króna vegna hlutabréfakaupa. Helgi segist í samtali við blaðið hafa gefið stjórn bankans grænt ljós á það í september, að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna út af lánveitingum frá bankanum vegna kaupa á hlutabréfum. 

Nýja Kaupþing vill koma eftirfarandi á framfæri vegna þessa máls:

Stjórn Nýja Kaupþings fór fram á lögfræðiálit frá tveimur utanaðkomandi lögfræðingum þeim, Viðari Má Matthíassyni lagaprófessor og Herði Felix Harðarsyni hrl., til að meta lögmæti ákvörðunar gamla Kaupþings. Samkvæmt álitum þeirra hefur stjórn Nýja Kaupþings ekki heimild til að rifta ákvörðun stjórnar gamla bankans. Stjórn Nýja Kaupþings ætlar hins vegar ekki að afskrifa lán til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa á meðan kæra hluthafa vegna lánanna er til meðferðar hjá sérstökum saksóknara.

Helgi Sigurðsson hefur ekki tekið þátt í störfum núverandi stjórnar þegar starfsmannalán hafa verið rædd og sat ekki fundi þar sem ákvarðanir um þau voru teknar. Stjórn og starfsfólk Nýja Kaupþings þakkar Helga Sigurðssyni vel unnin störf.

Helgi hefur einnig sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins:

Í ljósi síendurtekinnar og villandi umræðu um aðkomu mína að ákvörðun um lán til starfsmanna gamla Kaupþings banka, tel ég ljóst að ekki geti skapast sá friður um störf mín fyrir bankann sem nauðsynlegt er. Ég hef því ákveðið að segja starfi mínu lausu frá og með deginum í dag.

Ég hef notið þeirra forréttinda að starfa fyrir Kaupþing næsta óslitið síðan 1989 með frábærum samstarfsmönnum. Frá árinu 2002 hef ég verið yfirmaður lögfræðisviðs og ábyrgur fyrir þeim álitum sem sviðið hefur gefið stjórn bankans. Þar á meðal hvort stjórn bankans væri heimilt að fella niður persónulega ábyrgð á lánveitingum til starfsmanna í september sl. Sú niðurstaða að stjórn bankans hefði lögformlegar heimildir til að fella niður persónulega ábyrgð var í samræmi við ákvörðun hluthafafundar í ársbyrjun 2004 um að starfsmenn bæru ekki fjárhagslega áhættu af kaupum á hlutafé í bankanum. Þessi stefna bankans hafði jafnframt verið kynnt Fjármálaeftirlitinu í árslok 2003. Á sama hátt og stjórn bankans setti einhliða á takmarkaðar persónulegar ábyrgðir árið 2005 var það álit lögfræðisviðs Kaupþings að hún gæti fellt þá ábyrgð niður með sama hætti. Tvö lögfræðiálit sem stjórn Nýja Kaupþings hefur látið vinna fyrir sig, frá Viðari Má Matthíassyni prófessor og Herði Felix Harðarsyni, hrl. styðja það álit.

Ég hef ekki komið að ákvörðun stjórnar Nýja Kaupþings um hvernig hún fer með þessi lán sem flutt voru yfir frá gamla bankanum. Ég vil óska núverandi og fyrrverandi samstarfsmönnum mínum gæfu og góðs gengis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir