Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er að
flytja til Lúxemborgar. Hreiðar mun opna skrifstofu
ráðgjafarfyrirtækisins Consolium ytra en fyrirtækið stofnaði hann í
fyrrahaust ásamt samstarfsmönnum úr Kaupþingi. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Það veitir ráðgjöf til fjármálastofnana og fyrirtækja. Hreiðar segist flytja utan á næstunni og setjast að í Lúxemborg ásamt fjölskyldu sinni.
Hjá fyrirtækinu starfa fimm manns um þessar mundir og líklega mun þeim fjölga á næstunni. „Við höfum hóflegar væntingar um vöxt fyrirtækisins," segir Hreiðar, í samtali við Fréttablaðið.