Sjóðsstjóri kominn aftur til starfa

Sigurjón Þ. Árnason
Sigurjón Þ. Árnason mbl.is/Ómar

Sjóðsstjóri hjá Landsvaka, sem var vikið tímabundið frá störfum vegna láns sem Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, fékk út á einkalífeyrissparnað sinn, er aftur kominn til starfa hjá bankanum. Segir í tilkynningu að ekki sé vitað til að neitt misjafnt hafi komið upp sem snúi að viðkomandi starfsmanni.

Um miðjan júní var sjóðstjóranum vikið tímabundið frá störfum í tengslum við mál sem vísað var til Fjármálaeftirlitsins þar sem á fjárvörslusafn í einkalífeyrissparnaði viðskiptavinar  hefði verið keypt veðskuldarbréf, útgefið af sama viðskiptavini, að því er segir á vef Landsbankans en Landsvaki er dótturfélag bankans.

„Unnið hefur verið að ítarlegri skoðun á málinu bæði innan og utan bankans og er ekki vitað til að neitt misjafnt hafi komið upp sem snýr að viðkomandi starfsmanni. Landsbankinn telur að viðkomandi starfsmaður hafi í einu og öllu fylgt þeim reglum og verklagi sem krafist var og því hefur hann nú hafið störf á ný," samkvæmt tilkynningu frá Landsvaka.

Í frétt Morgunblaðsins frá 15. júní sl. kom fram að Sigurjón hafi fengið tvö lán hjá séreignarlífeyrissjóði í vörslu bankans, svonefndum Fjárvörslureikningi 3. Um er að ræða svonefnd kúlulán, sem eru með einum gjalddaga í lok lánstímans, eftir 20 ár. Vextir eru 3,5%. Annað lánið er 40 milljónir króna og hitt 30 milljónir, eða samtals 70 milljónir.

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, sem útbjó veðskuldabréfin sem um ræðir, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að lífeyrissjóðurinn, sem Sigurjón fékk lánin hjá, sé einkaeign hans og að heimilt sé að veita lán út á slíkan sjóð samkvæmt lögum. Sagði Sigurður að 40 milljóna króna lánið væri með veði í helmingi Sigurjóns í húseign hans og eiginkonu hans. Hitt lánið er tryggt með veði í annarri húseign Sigurjóns, samkvæmt veðbandsyfirliti frá Fasteignaskrá.

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, sagði aftur á móti í samtali við Morgunblaðið um miðjan júní að lífeyrissjóður geti ekki verið í einkaeigu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK