Húsleit hjá Byr

mbl.is/G.Rúnar

Fulltrúar embættis sérstaks saksóknara gerðu húsleit í höfuðstöðvum Byrs sparisjóðs í Borgartúni nú síðdegis, samkvæmt heimildum mbl.is. 

Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í lok október þá hefur Fjármálaeftirlitið vísað máli vegna láns sem Byr sparisjóður veitti eignarhaldsfélaginu Exeter Holding í október og desember 2008 til sérstaks saksóknara, en félagið var í meirihlutaeigu Ágústs Sindra Karlssonar lögmanns. Grunur leikur á að um umboðssvik hafi verið að ræða, en þau varða allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar.

Málið snýst um 1,1 milljarðs króna lán sem Byr veitti Exeter Holding í tveimur hlutum, í október og desember 2008, eftir bankahrunið, til þess að kaupa 1,8 prósenta stofnfjárhlut í Byr á yfirverði, en ekkert hefur verið greitt af láninu.

Samkvæmt upplýsingum frá Byr er staða mála sú að rannsókn málsins er í gangi og liður í henni er að starfsmenn sérstaks saksóknara komu til Byrs sparisjóðs til að fá nánari upplýsingar um málið og hafa starfsmenn Byrs verið í fullu samstarfi við þá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK