Gjaldskrár hækka um 10% í Reykjanesbæ

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. www.mats.is

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2010 var samþykkt í bæjarstjórn í gær að lokinni seinni umræðu. Er gert ráð fyrir að gjaldskrá bæjarfélagsins hækki að meðaltali um 10% en útsvarshlutfallið haldist óbreytt í 13,28%.

Í áætluninni er gert er ráð fyrir auknum skatttekjum vegna nýrra atvinnuverkefna á árinu en þó er tekið fram að skatttekjur eru enn undir landsmeðaltali. 

Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs verði jákvæð um 47 milljónir kr. en samstæðan sem inniheldur framkvæmdir Reykjaneshafnar og félagslegar íbúðir verði neikvæð um 653 milljónir kr.

Heildartekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 7.924 milljónir kr. en útgjöld 7.877 milljónir kr.

Gert er ráð fyrir að eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs á árinu 2010 verði 39,9% en samstæðu 23,3%. Eignir bæjarsjóðs á hvern íbúa nema 1639 þúsund kr. en skuldir 985 þúsund kr.

Áætlað er að skatttekjur án jöfnunarsjóðs aukist á árinu um 700 milljónir kr. vegna nýrra atvinnuverkefna sem hefjast á árinu, s.s. álvers í Helguvík, rafræns Gagnavers og heilsutengdrar ferðaþjónustu að Ásbrú. Þó er ekki gert ráð fyrir að skatttekjur á íbúa árið 2010 nái meðaltali sveitarfélaga á Íslandi, þar sem áhrif nýrra atvinnuverkefna verða ekki að fullu komin fram á árinu.

Álagningarhlutfall útsvars verður óbreytt frá árinu 2009, 13,28%, fasteignaskattur verður óbreyttur frá árinu 2009 eða 0,268%, umönnunargreiðslur til foreldra haldast óbreyttar kr. 25 þúsund sem og hvatagreiðslur k. 7.000 til niðurgreiðslu á menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi ungmenna.

Gjaldskrá Reykjanesbæjar hækkaði ekki árið 2009 en nú verður að meðaltali 10% hækkun á ýmsum þjónustuliðum frá árinu 2008, s.s. á vistgjöldum leikskóla þar sem tímagjald verður kr. 2400, ýmsum bókasafnsgjöldum og aðgangi að íþrótta- og sundmiðstöðvum. Gjald í tónlistarskóla hækkar um 5% frá hausti 2010.

Áfram verður frítt í sund fyrir börn á grunnskólaaldri og eldri borgara, frítt í strætó og á söfn bæjarins, samkvæmt tilkynningu.

Sjá nánar á vef Reykjanesbæjar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK