Bakkarvör óskar eftir heimild til nauðasamninga

Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir Brynjar Gauti

Bakkavör Group hf. mun í dag óska eftir heimild til að leita nauðasamnings hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Kröfuhafar félagsins sem hafa yfir um 80% af skuldum félagsins að ráða hafa mælt með nauðasamningi. Nauðasamningsferlið mun engin áhrif hafa á starfsemi Bakkavarar, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Móðurfélagið skuldar 62,5 milljarða króna

Heildarfjárhæð skulda móðurfélags Bakkavarar nemur um 62,5 milljörðum króna.

Á síðasta ári var gengið frá endurfjármögnun rekstrarfélaga fyrirtækisins fram til ársins 2012. Samkvæmt framlögðum samningi munu kröfuhafar í meginatriðum fresta öllum gjalddögum lána og skráðra skuldabréfaflokka félagsins til ársins 2014 en markmiðið er að kröfuhafar félagsins muni endurheimta fullt virði krafna sinna og ekki verði um afskriftir að ræða.

 „Liður í samningnum er að leggja til við hluthafafund að skipta hlutafé félagsins í þrjá flokka, A, B og C-flokk. Núverandi hlutafé verður í A-flokki.

Með samþykki samningsins munu allir hagsmunaaðilar njóta ávinnings af þeim árangri sem náðst hefur í rekstri félagsins í kjölfar hagræðingaraðgerða sem félagið hefur unnið að undanfarin misseri," samkvæmt tilkynningu.

Áætlanir félagsins gera jafnframt ráð fyrir bættri afkomu og að hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) muni aukast um 14% á ári og sala um 4% á ári til ársins 2012.

Hér er tilkynningin í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK