12 tilboð í Sjóvá

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist 12 óskuldbindandi tilboð í hlutafé Sjóvár Almennra trygginga hf. Í flestum tilvikum er boðið í allt hlutafé félagsins.

Þeim sex tilboðsgjöfum sem áttu hæstu óskuldbindandi tilboðin, sem jafnframt teljast hafa fullnægjandi fjárhagslega burði, verður gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og veittur aðgangur að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins.

Af þeim sex sem boðin verður áframhaldandi þátttaka í ferlinu eru þrír erlendir aðilar.

Tilboðin voru opnuð á þriðjudag í viðurvist Sigurðar Páls Haukssonar, löggilts endurskoðenda, sem var tilnefndur sem óháður matsaðili.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK