Viðskipti
| AFP
| 10.3.2010
| 22:07
Munu skoða hugmynd um Gjaldeyrissjóð Evrópu
Seðlabanki Evrópu mun skoða hugmynd Þjóðverja um að stofna Gjaldeyrissjóð Evrópu,
en honum yrði ætlað að virka á svipaðan hátt og
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir, það er að koma skuldsettum
aðildarríkjum evrusvæðisins til aðstoðar þegar þörf er á.
Forstjóri Seðlabanka Evrópu, Jean-Claude Trichet said, segir að bankinn hafni ekki hugmyndinni á þessu stigi málsins. Fara þurfi ofan í saumana á hugmyndinni.
Jürgen Stark, aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópu, hefur hins vegar varað við því að þetta gæti kostað gríðarlega fjármuni og ýtt undir ósjálfstæði skuldsettari ríkja.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















