Verðbólgan 8,3% í apríl

Vísitala neysluverðs hækkaði um 8,3% frá apríl 2009 til jafnlengdar í ár. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 11,3%. Verðbólgan hefur hjaðnað á tímabilinu og verið minni en 10% síðan í september 2009. 

Hagstofan hefur gefið út sérstakt hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs frá apríl 2009 til apríl 2010. Í því eru birtar töflur um þróun hennar síðustu tólf mánuði og vikið að árlegri endurnýjun á grunni vísitölunnar í mars 2010. Einnig er fjallað um fastskattavísitölu neysluverðs og nýja aðferð við útreikning á undirvísitölu kaupverðs nýrra bíla.

Vísitala neysluverðs apríl 2009-2010 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK