Hæsta gildi væntingavísitölu frá hruni

Væntingar hafa aukist hér á landi en þessi börn voru …
Væntingar hafa aukist hér á landi en þessi börn voru glöð í bragi í sólinni um helgina. mbl.is/Ómar Óskarsson

Væntingar neytenda halda áfram að glæðast ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var nú í morgun. Vísitalan hækkar um tæplega þrjú stig frá fyrri mánuði og stendur nú í 57,4 stigum, sem er hæsta gildi hennar frá því fyrir hrun.

Vístalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. Þetta er einungis í annað skiptið sem vísitalan kemst yfir 50 stig frá bankahruninu og er því augljóslega bjartara yfir landanum nú en undanfarin misseri, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

„Bjartsýni landsmanna nú er þó líkt og undanfarna mánuði fyrst og fremst bundin framtíðinni. Mat á núverandi ástandi í efnahags- og atvinnumálum versnar hins vegar frá síðustu mælingu og mælist því áfram afar lágt, eða 8,0 stig. Tæplega 78% svarenda telja að efnahagsástandið sé slæmt um þessar mundir og rúm 57% þeirra telja að atvinnumöguleikar séu litlir.

Væntingar til framtíðarinnar glæðast hinsvegar en mat landsmanna á aðstæðum í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði hækkar úr 83,7 stigum í 90,3 stig. Þó að lund landans sé nú að léttast þegar horft er til framtíðar bólar enn ekkert á því að mat á núverandi aðstæðum færist til betri vegar.

Líklega þarf að létta meira til í efnahagsmálunum áður en það gerist en verðbólgan hér er enn sú mesta á EES-svæðinu, atvinnuleysi er i sögulegu hámarki og Icesave deilan bíður lausnar. Mögulegt er að allt þetta hafi verið landanum ofarlega í huga þegar mæling Capacent Gallup fór fram fyrr í þessum mánuði, og í ofanálag var Eyjafjallajökull þá enn að spúa ösku sinni og varpaði stórum skugga á ferðamannatímabilið sem nú er að hefjast. Núna horfir það til betri vegar en athyglisvert verður að sjá hvernig væntingar landsmanna þróast næstu mánuði," segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK