Olíutunnan undir 80 dali á ný

Það gengur oft á ýmsu á NYMEX markaðnum í New …
Það gengur oft á ýmsu á NYMEX markaðnum í New York þar sem viðskipti með hráolíu fara fram. AP

Verð á hráolíu lækkaði lítillega í rafrænum viðskiptum í Asíu í nótt og morgun eftir að bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna hafði birt upplýsingar um að hægt hafi á efnahagsbatanum þar í landi.

Verð á hráolíu til afhendingar í september lækkaði um 40 sent og er 79,85 dalir tunnan í  New York.

Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 35 sent og er 79,25 dalir tunnan í Lundúnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK