Björgólfur segir engar málshöfðanir gegn sér fyrirhugaðar

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Kaupsýslumaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson fjallar á vef sínum í dag um frétt Stöðvar 2 frá því í gærkvöldi þar sem fjallað var um samkomulag sem Björgólfur Thor gerði við lánadrottna sína í júlí sl. Segir hann fréttina túlkaða á alla kanta í fjölmiðlum og á vefnum. Björgólfur segir að hann hafi fengið þær upplýsingar úr Landbankanum að engar málshöfðanir væru fyrirhugaðar gegn honum.

 „Ég sé einnig  að réttur Landsbankans til að lögsækja mig er að valda misskilningi.  Hann er að sjálfsögðu til staðar. Hins vegar ræddi ég við bankann sem staðfesti að rannsóknir hefðu staðið yfir lengi af hálfu sérstaks rannsóknarteymis frá Deloitte í Bretlandi og kom fram að engar málshöfðanir væru fyrirhugaðar og heldur engin tilefni riftana á gjörningum. Hið sama gildir raunar um rannsókn PriceWaterhouseCoopers á starfsemi  Straums Burðaráss, þar hafa engin tilefni fundist til riftunar samninga við mig, eins og skýrt var frá í fréttum í júní sl.," segir Björgólfur á vef sínum.

Sjá nánar 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK