Vita ekkert um meintan stuðning við „fyrrum eiganda“

Eftirlitsnefnd um sérstaka skuldaaðlögun hefur engar staðfestar upplýsingar um að erlendir aðilar hafi óskað eftir að „fyrrverandi eigendur“ kæmu að endurreisn fyrirtækja hér á landi.

Í skýrslu eftirlitsnefndar er fjallað um „orðsporsáhættu“ fyrirtækis og fjármálafyrirtækis af fjárhagslegri endurskipulagningu. Dæmi voru um að bankarnir teldu að það geti skaðað orðspor sitt ef fyrirtæki á landsbyggðinni yrði synjað um fjárhagslega endurskipulagningu.

Bankarnir töldu einnig orðsporsáhættu tengda félögum þar sem „útrásarvíkingar“ koma að rekstri fyrirtækja. Nefndin segir að umfangsmestu málin af þessu tagi séu enn í vinnslu í bankakerfinu og því sé athugun á þeim ekki lokið.

Fram hefur komið í fréttum af fjárhagslegri endurskipulagningu einstakra fyrirtækja, að bankarnir teldu sig hafi verið beittir þrýstingi erlendis frá um að fyrrum eigendur komi áfram að rekstri fyrirtækja.

„Nefndin hefur farið fram á að fá í hendur gögn sem staðfesta fullyrðingar fjármálafyrirtækja um að aðilar hérlendis og erlendis sem hafa veruleg áhrif á endurheimtu möguleika fjármálafyrirtækja og hafi farið fram á að „fyrrum eigendur“ kæmu að endurreisn fyrirtækjanna. Nefndin hefur ekkert undir höndum sem staðfestir slíkt eða hrekur. Því getur nefndin ekki lagt mat á hvort fyrirtæki sé lífvænlegt án „fyrrum eiganda“,“ segir í skýrslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK