Eignir lífeyrissjóða jukust um 2,2%

Hrein eign lífeyrissjóða í lok nóvember var 1893,5 milljarðar króna og hækkaði um 41,2 milljarða í mánuðinum eða um 2,2%.

Að sögn Seðlabankans hækkaði innlend verðbréfaeign lífeyrissjóðanna um tæpa 62 milljarða í nóvember. Hækkunina má að stórum hluta rekja til aukningar á eign lífeyrissjóða á Íbúðarbréfum um 50 milljarða. Erlend verðbréfaeign lækkaði í nóvember um 27 milljarða. 

Sé miðað við nóvember 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 144,8 milljarða eða 8,3%.

Vefur Seðlabankans

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK