Endurreiknar öll húsnæðislán einstaklinga í erlendri mynt

Íslandsbanki mun, í samræmi við nýsett lög frá Alþingi, endurreikna húsnæðislán einstaklinga í erlendri mynt með veði í eigin íbúðarhúsnæði og breyta þeim í húsnæðislán í íslenskum krónum. Bankinn gengur lengra en lögin segja til um.

 Bankinn mun ganga lengra en lögin segja til um og endurreikna öll erlend lán með veði í íbúðarhúsnæði, burt séð frá hvort um eigið íbúðarhúsnæði er að ræða. Flest lán munu við þetta lækka á bilinu 25 – 40%. Lækkunin veltur á myntsamsetningu lánsins, hvenær það var tekið og hversu mikið hefur verið greitt af því, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá bankanum.

 

Ef höfuðstólslækkun erlendra lána felur í sér betri niðurstöðu fyrir lántakendur en endurútreikningur lánsins geta þeir áfram valið það úrræði. Þeir viðskiptavinir bankans sem hafa nú þegar valið höfuðstólslækkun munu geta séð stöðuna á láninu miðað við endurútreikninginn. Ef sú niðurstaða verður hagstæðari en höfuðstólslækkunin geta viðskiptavinir valið endurútreikninginn.

 

Um 100 starfsmenn bankans koma að vinnu við endurútreikninginn enda um umfangsmikið verkefni að ræða. Vegna fjölda lána og umfangs verða endurútreikningarnir framkvæmdir í nokkrum áföngum. Stefnt er að því að fyrsti hluti endurreiknaðra lána verði birtur í heimabanka lántakenda eigi síðar en 25. febrúar næstkomandi. Endurútreikningurinn mun einnig ná til húsnæðislána einstaklinga sem hafa verið yfirtekin eða uppgreidd. Tilkynnt verður síðar hvenær sá útreikningur liggur fyrir.

 

Þar til endurútreikningur liggur fyrir stendur viðskiptavinum áfram til boða að greiða 5.000 kr. mánaðarlega af hverri upphaflegri milljón lánsins. Allar greiðslur verða teknar með inn í endurútreikning lánsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK