Hrein eign lífeyrissjóða var 1920,2 milljarðar króna í lok desember og jókst um 26,9 milljarða í mánuðinum.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Seðlabankanum.
Innlend verðbréfaeign hækkaði um 43,4 milljarða og nam rúmlega 1352 milljörðum króna í
lok mánaðarins. Segir Seðlabankinn, að hækkunina megi að mestu leyti rekja til aukningar á eign
lífeyrissjóða á íbúðabréfum.