Segir bankamenn í startholum

Már Guðmundsson á fundi viðskiptanefndar Alþingis.
Már Guðmundsson á fundi viðskiptanefndar Alþingis. mbl

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að íslenska ríkið muni fara í formlega kynningu á skuldabréfaútboði erlendis umsvifalaust ef að Icesave-samningurinn verður staðfestur í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttir, þingmanns VG, á opnum fundi viðskiptanefndar Alþingis rétt í þessu. Már sagði að bankamenn biðu með pennann kláran eftir að samningurinn væri staðfestur.

Már var í kjölfarið spurður hvað gerðist ef Icesave-samningurinn yrði ekki samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Svaraði hann því þá til að menn þyrftu að bíða lengur og sjá hver þróunin yrði á skuldatryggingarálagi og lánshæfismati ríkisins.  „Þá þyrftum við að treysta á innri öfl Ísland og halda áfram að kaupa gjaldeyri,“ sagði seðlabankastjórinn, og bætti því við að gengi krónunnar verði lægra og verðbólga meiri. Seðlabankinn þyrfti að halda áfram gjaldeyriskaupum af innlendum aðilum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK