Kostar 11,2 milljarða

Samruni SpKef og Landsbankans var kynntur á blaðamannafundi í Reykjanesbæ …
Samruni SpKef og Landsbankans var kynntur á blaðamannafundi í Reykjanesbæ í morgun. mbl.is/Þórður

Kostnaður ríkissjóðs við samruna SpKef og nýja Landsbankann, NBI, verður 11,2 milljarðar, samkvæmt nýjasta mati sem miðast við árslok 2010. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi þar sem samruninn var kynntur. 

Steingrímur lagði þó áherslu á að um mat væri að ræða og ekki endanlegan kostnað. Sagði ráðherrann að áætlað væri að 8,2 milljarðar myndu sparast með því að sameina sjóðina í stað þess að endurfjármagna SpKef. 

Með því að sameina NBI og SpKef þurfi ríkissjóður aðeins að tryggja að eignir og skuldir standist á, en ekki útvega eiginfjárinnspýtingu að auki.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK